Sunday, July 1, 2007

Niður á Krímskagann

Legg af stað til Simferopol í dag. Klukkan hálfsex að lókaltíma eða hálfþrjú að íslenskum. Er búinn að undirbúa þetta ágætlega. Stefni á að gista í litlum bæ sem heitir Alushta og er rétt norðan við Jalta. Á að vísu eftir að panta herbergi, en er búinn að útvega fullt af hótelnöfnum og símanúmerum. Ég hitti síðan Konna á eftir og bið hann um að hringja og bóka herbergi fyrir mig. Ég skila lyklinum eftir tvo tíma og þarf því að drepa tímann í Kiev í nokkra klukkutíma áður en lestin leggur af stað. Konni er reyndar búinn að bjóða mér í hádegismat eftir að ég skila lyklinum, þannig að það fýkur vonandi ein klukkustund þar. En annars er alltaf nóg að sjá og bralla í Kiev, þannig að manni á ekkert eftir að leiðast. Passa síðan bara að vera með lappann fullhlaðinn í lestinni svo ég geti haldið áfram að horfa á Family Guy.

Ég ákvað að stefna að því að vera með bækistöðvar á einum stað, frekar en að gista á nýjum og nýjum hvern dag. Það hefði bara verið tímafrekt vesen þar sem Krímverjar tala litla sem enga ensku, og Krímskaginn er ekki það stór. Að minnsta kosti ekki strandlínan. Maður getur vel tekið "ausflucht" yfir daginn til annað hvort norðurs eða suðurs. Er búinn að taka saman helstu "sehenwurdichkeiten" á Krímskaganum með hjálp góða bóka og Konna, sem er ættaður þaðan. Það verður því nóg að sjá og bralla þarna niður frá vona ég. Nú ef ekki þá eru þarna ágætar strendur og eflaust hægt að sóla sig betur en hér í Kiev.

Það er spurning hversu mikið ég kemst á internetið þarna niður frá, en ég reyni að komast í það sem fyrst eftir að ég er búinn að koma mér fyrir. Þangað til þá: tata

3 comments:

Anonymous said...

Oi, achei teu blog pelo google tá bem interessante gostei desse post. Quando der dá uma passada pelo meu blog, é sobre camisetas personalizadas, mostra passo a passo como criar uma camiseta personalizada bem maneira. Até mais.

Anonymous said...

Sammála rodrigo

Samuel said...

Rodrigo er fraendi minn fra El Salvador. Hress gaur.