Thursday, July 12, 2007

Heim í heiðardalinn

"Góðir farþegar, velkomnir heim". Gamalkunna kveðjan - sem er sennilega einstök meðal flugfélaga - gall við rétt eftir að Snorri Þorfinnsson snerti flugbrautina í Keflavík og maður áttaði sig á því að gott ferðalag væri að lokum komið.

Flugið gekk ágætlega. Vélinni frá Kiev seinkaði að vísu um klukkutíma í heildina, eftir seinkun á fluginu frá London og smá bið í flughlaðinu á flugvellinum á Boryspil. Það kom þó ekkert að sök þar sem þrír tímar voru frá áætlaðri lendingu í London í flugið upp á Klaka. Bilið styttist í mjög hóflega bið á Heathrow.

Það var þó pínku stress á tímabili snemma dags fyrir flugið, þar sem ég tók mér aðeins lengri tíma í síðasta hádegisverðinn í Kiev en ég ætlaði mér, og áttaði mig líka á því að ég væri kannski ekki að reikna með nógu miklum tíma til að koma mér á flugvöllinn eins og ég þyrfti. En sem betur fer var ekki mikið af fólki á leiðinni í flug þegar ég mætti á völlinn (ólíkt því sem það var síðast þegar ég gerði það, en þá var heil Eurovision-keppni á leiðinni í flug á sama tíma). Ég rann því beint í gegn. Bókaði töskuna mína í transit alla leið til Keflavíkur.

Þegar komið var í Leifsstöð fann ég hvernig þreytan helltist yfir mig, enda var klukkan orðin hálfþrjú að nóttu á úkraínskum tíma. Við færibandið sannfærði ég sjálfan mig um að taskan myndi eflaust ekki sýna sig, að hún væri valsandi einhvers staðar um óravíddir Heathrow. En gamli garmurinn birtist nokk snemma, mér til ómældrar gleði. Við útganginn bættist óvænt ánægða, en mamma og pabbi biðu þar eftir mér. Nýkominn úr bústaðnum.

En skemmtilegri og athyglisverðri dvöl í Kiev og Úkraínu er nú lokið. Þetta var virkilega þess virði og manni líður mjög vel eftir að hafa prófað að upplifa þennan heimshluta líkt og heimamennirnir upplifa hann. Að búa í (nokkuð) dæmigerðri íbúð og ferðast um á rush-hour inn í borgina á virkum dögum og vera almennt í allt annarri rútínu en maður upplifir heima á gamla Klakanum. Krímskaginn var síðan alveg nýr heimshluti sem opnaðist fyrir manni. Fallegur staður sem maður á örugglega eftir að heimsækja aftur.

Úkraína er land sem á framtíðina fyrir sér. Ég las grein nýlega um stjórnmál í Úkraínu sem innihélt mjög góða greiningu á stöðu mála og hrakti að mestu áhyggjur um meiri óstöðugleika en verið hefur. Í raun eru úkrainumenn margir hverjir ánægðir með stjórnmálarifrildið þar sem það héldi stjórnmálamönnunum frá því að vera með puttana í hlutum sem þeir ættu ekki að vera með puttana í. Og úkraínumenn eru klárt fólk og ámenntaðir í ýmsum greinum. Aðlaðandi launakostnaður hlýtur í auknum mæli að laða til sín framleiðslufyrirtæki annars staðar frá og ýta undir áframhaldandi hagvöxt. En það er mikið verk framundan á mörgum sviðum, og gaman að fylgjast með því á næstu árum hvernig málin þróast. Og maður lítur við af og til, það er á hreinu.

Do svidaniya, og takk fyrir að lesa!

Ykkar Sammi

4 comments:

Unknown said...

velkominn á klakann

Samuel said...

Takk takk

Anonymous said...

velkominn heim. farðu að drífa þig í vinnuna. það er ekki kjaftur hérna...

kv. p

Svenster said...

Svenster maetir a klakann i kveld... er ad sotra frian Kalla i businesslounge a Castrup... se thig vonandi a morgunn.

Med venlig hilsen,
Svenni