Tuesday, June 19, 2007

Úkraínskar stelpur

Jæja, þá kemur færslan sem eflaust allir hafa verið að bíða eftir.

Enginn hefur tekið þá skýringu trúanlega að ég sé staddur í Kiev að læra rússnesku einvörðungu og kynnast ólíkum menningarheimi. Miklu líklegri skýring sé sú að ég - Mr. Die Hard einhleypingur með meiru - sé hér staddur til að pikka upp dömu. Enda er það alveg rétt! ... Hér ætla ég mér sko að finna þá einu réttu. Já já. The bride to be. Eftir að hafa endanlega gefist upp á íslensku genalauginni undirbjó ég ferðina í vetur með því að liggja í katalógum og netsíðum sem bjóða upp á kynni við undursamlegar Austur-evrópskar stúlkur. Lagði af stað frá Íslandi með yfirfulla dagskrá af deitum við stelpur sem þrá ekkert heitara en að kynnast hávöxnum víkingi með vasana fulla af seðlum og fyrirheitum um betri framtíð. Hef líka lítið gert annað en hitt stelpur í þessa tíu daga sem ég hef verið hérna og allt lítur vel út. Ætli ég fái ekki einar 5 - 10 stelpur til mín í heimsókn í haust, svona til að sjá hvort þær passi inn í íslenska tilveru...

Hah! ... þetta finnst ykkur líklegt! :-) (sennilega búið að líða yfir mömmu þegar hingað er komið, sorry mamma).

Ég lái þeim reyndar ekki sem eru sannfærðir um að þetta sé málið. Enda margar forsendur óneitanlega til staðar. Þrítugur einhleypur karlmaður í einni stærstu borg Austur-Evrópu. Með úrvali af sennilega yfir 300 þúsund fallegum einhleypum stelpum. Comon! ... Case closed. :-)

En þetta er samt ekki alveg málið. Þótt ég sé eflaust í dreymnari og rómantískari kantinum meðal stráka á mínum aldri þá er raunveruleikinn aldrei langt undan.

Ég viðurkenni fúslega að hafa orðið verulega skotinn í stelpunni sem ég kynntist hér í Kiev fyrir tveimur árum. Og kannski var það pínku sem dróg mig hingað til baka. En ég tapaði öllu sambandi við hana fyrir löngu síðan og hef aldrei getað aflað þess á ný. Ég komst líka að því þá að það eru tvö mjög alvarleg atriði sem gera það mjög óraunhæft og erfitt að stefna að kynnum við stelpur hérna. Annars vegar mjög takmörkuð enskukunnátta, og hins vegar verulegir átthagafjötrar sem fólk er bundið hérna. Sérstaklega stelpurnar.

Ég hugsa að það séu ekki nema kannski nema ein af hverjum fjórum stelpum hérna sem geta tjáð sig á ensku svo sæmandi sé. Þær sem tala hana einna best eru sennilega þær sem koma úr efri þjóðfélagsstigunum, og jafnframt þær sem hafa það einna best. Þær eru því ekkert að örvænta yfir því að komast ekki frá landinu.

Síðan eru það átthagafjötrarnir. Ekki bara fjárhagslegir, heldur erfiðleikarnir við að afla sér visa inn á Schengen-svæðið. Ung ógift stúlka sem hyggst ferðast inn á það er látin ganga í gegn um ótal kannanir, t.d. um fjárhagsstöðu, bankareikninga og atvinnuhagi. Flestar stelpur sem hér eru eru - eðlilega - með mjög bága fjárhagsstöðu og jafnvel engan bankareikning. Sem gerir þetta nánast vonlaust frá upphafi.

Síðan eru það fjölskylduböndin. Konni sagði mér það einhvern tímann að flestar Austur-evrópskar stelpur sem auglýstu sjálfa sig á internetinu væru að vonast eftir einhverjum sem væri tilbúinn til að flytja TIL þeirra, ekki öfugt. Og þar af leiðandi hinn vestræna bankareikning auðvitað. Og ég er ekkert á leiðinni til A-Evrópu for good.

Þannig að gott fólk. Þið getið aflétt kenningum um að ég sé hérna (gagngert) til að leita mér að stelpu. Ég er - eins og allir einhleypingar - svo sem ég stöðugu lúkkáti, þannig að maður getur ekki sagt NJET án þess að blikna. Og stelpurnar hérna falla mér útlitslega óneitanlega vel í geð. En Little Mr. Reality er ekki langt undan og ekki vænta þess að ég labbi út úr Leifsstöð með arminn yfir öxlina á stúlkukind.

Það verður sennilega að bíða enn um sinn ;-)

Daídje strissnistja voi vossjem tsjisba? (þetta segir kennarinn minn að sé mjög mikilvæg setning fyrir peningaþyrstar bissnessblóðsugur eins og mig: "Viltu hitta mig á morgun kl. fimm?")

4 comments:

Samuel said...

Ég sem hélt að nú myndi allt fyllast af kommentum :-D

Anonymous said...

Vildi að ég gæti sent þér mail. Mútta.

Anonymous said...

Hvað á ég nú að gera? Kv. Mútta.

Samuel said...

Þú getur sent mér meil á samueltorfi@gmail.com, bara eins og venjulega