Friday, June 22, 2007

Myndavélin og Tsjernobyl

Eftir að hafa þrætt allar helstu myndavélabúðir hér í Kiev er ég orðinn úrkula vonar að finna rétta gerð af myndavélasnúru fyrir myndavélina mína. Það virðist enginn selja sama vörumerki og vélin mín er, nefnilega Konica-Minolta. Allt Sony og Kodak hér hjá Kænugarðsbúum. Fattaði reyndar að kannski væri málið að reyna að finna usb-tengi fyrir myndakortið sjálft. Það verður verkefni morgundagsins, ásamt hefðbundnum heimalærdómi...

En myndir verða að bíða um sinn...

Annars er allt að verða klappað og klárt fyrir ferðina til Tsjernobyl. Fer á þriðjudaginn með átta manna hóp á vegum fyrirtækis sem kallar sig SoloEast Travel. Síðan eru Andrés, fyrrum Línuhönnunarmaður og félagi hans, á leiðinni til Kiev í þessum töluðu orðum. Þeir ætla með í þessa sömu ferð, þannig að maður fær smá íslenskt kompaní í næstu viku. Ferðin á að taka einn heilan dag. Tsjernobyl er í um 100 km fjarlægð frá Kiev og Prypiat (draugaborgin) er þar rétt hjá. Ímyndið ykkur: upphaflega átti að reisa kjarnorkuverið í einungis 25 km fjarlægt frá Kiev, en mótbárur frá vísindaakademíunni kom í veg fyrir það. Ef ekki, þá er hugsanlegt að í dag væri þessi 2,6 milljón manna borg draugaborg í stað litlu 50 þúsund manna borgarinnar Prypiat, og afleiðinagr slyssins öllu alvarlegri...

Það á að vera hættulaust að ferðast inn á svæðið í stuttan tíma. Geislavirknin er í dag fyrst og fremst af völdum Cesíum 137, en rétt eftir slysið voru það aðrar ísótópur sem blönduðu banvænan kokteil, nefnilega Joðíð 132, Cesíum 134 og Strontíum 90. Þessar ísótópur hafa þó miklu skemmri helmingunartíma en Cesíum 137, og því hættar að valda verulegri geislun. En það tekur Cesíum 137 um 300 ár fyrir það að ná einum þúsundasta af þeim styrk sem það hefur í dag. Og það er sá tími sem verður að líða áður en fólk getur farið að búa á svæðinu á ný til lengri tíma litið. Engu að síður er fólk nú þegar farið að búa í sumum þorpunum í grennd við verið...

No comments: