Monday, June 18, 2007

Þetta skotlíður allt saman. Búinn að vera hérna í tíu daga sirka. Fannst mér fyrst í dag vera eitthvað aðeins meira en tótal byrjanda í rússnesku þegar ég gat maukað saman einni ágætri setningu. Kennarinn minn var hrifinn. Í morgun setti hún fram þá kenningu að eina mögulega skýringin á því að ég vildi læra rússnesku væri til að græða peninga ... á einhvern hátt. Að ég væri bara að leika mér fannst henni ótrúverðugt. Kenndi mér að segja það á rússnesku...

En annars sagði hún mér að flestir sem kæmu til hennar að læra rússnesku væri bissnessfólk sem væri í leit að frægð og frama. Hefði t.d. sótt um vinnu sem krefðist þess að menn lærðu rússnesku. Þetta er ekki skrítið, enda mikið gullgrafaraæði hér eins og í Moskvu, þótt skalinn sé sennilega öllu minni. Mikið um feita kalla á allt of flottum bílum miðað við almennan efnahag hérna. Þeir eru síðan oft með einkabílstjóra til að passa bílana og sitja í þeim þar sem þeir leggja - yfirleitt - ólöglega...

Annars er ótrúlega mikið líf í Kænugarði. Allt er yfirfullt á einn eða annan hátt. Göturnar eru yfirfullar, gangstéttarnar yfirfullar, metróinn er yfirfullur. Og allt á nánast alveg sama hvaða tíma sem er. Hvort sem það er á annatíma eða ekki...

Ligg hér í rúminu með lappann í kjöltunni og nýbúinn að bera á mig smá smyrsl eftir flamberingu laugardagsins. Hefði átt að vera hálftíma styttra í sólbaðinu...

3 comments:

Anonymous said...

Sælinú Smúlus. Ég stend í þeirri trú að þú leggir stund á rúsnesk fræði til þess að kynnast kvennfólki (fáar jafn fallegar og þær slavnesku. Engin augnumgjörð jafn falleg og sú möndlulaga. Þið mútta getið svo spjallað á dimmum vetrarkvöldum yfir sofandi spöðum og því öllu. Tilkynnist annars hér með að þú ert lukkulegur eigandi eins skammts af eðal klósettpappír íslenskra gæða þ.e. ekki glansandi öðrum megin eins og í austrinu í denn. Kemur sum sé heim stórskuldugur upp á einar 3000, Pjotr þakkar stuðninginn. Annars Seltirnískt blíðviðri á SV-horninu og allir að leka niður ;) Getur þú ekki kennt okkur styttri kveðju en dast vadanja ... eða hvernig sem það nú er ?

Anonymous said...

привет самуил!

Sko mig. Ég þurfti ekki einu sinni að fara austur fyrir tjald til að senda þér rússneska kveðju......fór bara á netið. Annars hefði ég ekkert á móti því að vera þarna hjá þér. Ég myndi pottþétt læra rússnesku til að búa til pening! Maður þarf nefnilega að hafa stafsetningu rétta á peningunum sem maður myndi falsa :P Bið annars að heilsa og hlakka til að sjá næstu færslu

Guggan said...

famous last words...!