Fyrsti rússneskutíminn var í morgun. Hitti skólastjórann (sem er gutti á mínu reiki) og kennarann í morgun við Maidan Nezaleschnosti - aðaltorgið - og þau röltu með mér upp í stofnun slavneskra fræða. Þar var gengið frá námsgjaldinu og kennslan hófst fljótlega í framhaldinu af því...
Kennarinn minn heitir Anna Angelova. Sennilega um fertugt og talar ekki mikla ensku. En er voða indæl og ágætur kennari. Hún hrósar mér í hástert fyrir góðan framburð, enda tek ég mér bara Örn Árnason til fyrirmyndar í þeim efnum...
Fyrsti tíminn var nokkuð strembinn, og það er svolítið álag að vera bara einn í tíma. En fyrir vikið fær maður súpergott aðhald og maður getur farið fram og til baka í efninu eins og maður vill. Allt eftir þörfum. Verð að muna að taka með mér vatnsflösku í næsta tíma því kverkarnar urðu ansi þurrar þegar á leið...
Á morgun er spáð 30 stiga hita og glaðasólskin. Stefnan því tekin á ströndina þegar tímanum lýkur, bæði í sólbað og upprifjun eftir tímann. Góð blanda vona ég ...
Meira síðar, og verið dugleg að kommenta! ... ég heimta feedback.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
hæ hæ Örn Árna... þetta virðist allt lofa góðu hjá þér og vera eins og til stóð. Gat verið að þú fótboltabullan skelltir þér á leik :-/ greinilega stemming þar. þetta með íbúðina var greinilegt að það voru einhverjar blekkingar í gangi varðandi stærðina...
En gangi þér vel með þá rússnesku og hitann, við erum bara í 11 stigum en sól. kv. Bk & co 6. hæð
Hæ Sammi. Mig grunaði nú reyndar að þú tækir gamla sendiherrann í kennslunni. Myndir örugglega vera gerður að sendiherra íslands í úkraínu fyrir vikið. Gaman að sjá hvað þú ert virkur að blogga. Gangi þér vel úti og við heyrumst!
ég legg til að komir með setningu dagsins.. á hverjum degi auðvitað... svo við hin fáum að njóta þessarar kennslu líka...
Hverjir skoruðu mörkin fyrir Dynamo. Var Sergei Rebrov á skotskónum? Gangi þér annars vel í rússneskunni! Flott framtak. kv. Öddi.
Fótboltabullan ég?! ... hehe. Þetta er kannski fjórði knattspyrnuleikurinn sem ég fer á á ævinni :D ... ég náði ekki hvað þeir heita sem skoruðu, var ekki orðinn nógu sleipur í kyrillíska stafrófinu til að geta lesið það, en mörkin voru ekkert sérstaklega falleg
Setning dagsins? hmm, tjahh, setning gærdagsins var sennilega "isvinnidsje, ja nje binajo", sem útleggst afsakið ég skil ekki.
Gulli, þeir elska Júrí-Resetof hreiminn minn hérna. Sendiherratitillinn er svo gott sem tryggur...
Post a Comment