Friday, June 15, 2007

Heitt heitt heitt

Það er all heitt í Kiev þessa stundina. Um 34 gráður. Þó vill til að það er hálfskýjað. Í gær heimsótti ég safn þar sem ég frétti af. Það átti að sýna Kiev í smækkaðri mynd með módelbyggingum. Alveg ljóst að það væri eitthvað fyrir mig. En þegar komið var á staðinn þá var þetta ekkert voðalega beisið. Í raun lítið annað en stór garður með einstaka byggingum í smækkaðri útgáfu...

Á safninu gaf sig á tal við mig eldri maður. Sennilega milli fimmtugs og sextugs. Við enduðum á því að rabba saman um sovéttímann á þýsku. Hann sagði mér t.a.m. frá því að foreldrar hans hefðu neyðst til að búa í flugvélaflaki af gamalli Junkers fyrstu veturna eftir að stríðinu lauk. Hann sagði mér líka frá því að þegar rigndi á þjóðvegina yfir sovéttímanna þá hefðu ökumenn alltaf gefið duglega í þegar ekið var ofan í polla. Einfaldlega til að auka líkurnar á að fljóta yfir mögulegar djúpar holur og jafnvel hyldýpi. Mjög athyglisvert...

Safnið var í grennd við ströndina í Gydropark, sem er vinsælasta útivistarsvæðið í Kiev. Ég fór í stutt sólbað þar og upp úr því fór ég og hitti tvær vinkonur Svenna á kaffihúsi við aðalgötuna. Svenni er öllum hnútum kunnugu hér sem annars staðar í A-Evrópu, og hann var svo góður að kynna mér fyrir þeim og þær aftur tilbúnar að sýna mér borgina. Maður er því farinn að kynnast fólki hérna...

1 comment:

Anonymous said...

Gott að heyra í þér. Hér er hálfkalt. Erum að faraí Glóru og á morgun í útskrift.partý til Unnar og Andra og Árna Péturs og 60 ára afmæli Gunnar.
Take care. Mútta.