Wednesday, June 6, 2007

Lagt í 'ann

Jæja góðir hálsar.

Þegar þetta er skrifað er réttur sólarhringur í brottför til London þar sem ég gisti í eina nótt áður en förinni verður haldið áfram til Kiev á föstudagsmorguninn. Lagt verður í hann kl. 16 á morgun og áætlað að lenda um kl. 20 í London að staðartíma. Er búinn að útvega mér gistingu á hinu víðfræga gistihúsi Oakwood Guest House í West Draydon, en það ku vera í næsta nágrenni Heathrow...

Flugið til Kiev er svo snemma á föstudagsmorgun og ég þarf að vera kominn út á völl ekki seinna en hálfátta. Oakwood er ekki svo þróað að geta boðið upp á vakningu með síma, heldur er frúin búin að lofa mér að hún muni láta vekjaraklukku fylgja með herberginu. Hugulsemin í blessuðum Bretunum...

Hér er svo hlekkur sem sýnir staðsetninguna á íbúðinni minni í Kiev þessar þrjár vikur sem ég verð á námskeiðinu. Hressandi staðsetning innan um byggingar sem reistar voru á hátindi Austur-evrópskrar byggingarlistar: Sovéttímanum....

Hér er svo annar hlekkur sem sýnir innvolsið í íbúðinni. Þetta er sko 30 fermetra lúxusíbúð ... luxury apartment sko. Meðal þess sem fylgir með í lúxusinum er gegnsæ klósettseta með skemmtilegu rósamynstri og niðurfellanlegt rúm! Mig hefur alltaf dreymt um að fá að sofa í svoleiðis rúmi alveg síðan ég sá einhverja Carry-On myndina þegar ég var gutti, og menn voru að endasendast upp og niður í hinu mesta hamagangi...

Hinn úkraínski Konni - eða Kostyantin Stroginov - sem er kunningi minn í Kiev og við kynntumst í Vondulagakeppninni fyrir tveimur árum, ætlar að taka á móti mér á flugvellinum í Kiev á föstudaginn og verður vonandi búinn að sækja lykilinn að íbúðinni fyrir mig, eins og hann er búinn að lofa. Hann og kærastan hans eru svo búin að lofa mér að sýna mér helstu lystisemdir Obolon-hverfisins, en þau búa - merkilegt nokk - við sömu götu! ... en þetta er reyndar býsna stór gata og ég hugsa að hún - ein og sér - geti hýst alla Reykvíkinga...

Það ku vera internettenging í íbúðinni (allegedly), svo ég mun reyna að blogga næst á föstudagskvöldið, ef ég næ að tengja lappann. Þannig að bæ í bili alle sammen...

8 comments:

Vald�s Mar� said...

Góða ferð !! :)

Stebbi said...

Magnað! Fylgist með...

Anonymous said...

gangi ther vel med thetta, hljomar vel.

Saevar

Anonymous said...

Góða ferð og gangi þér vel.
Guðbjörg Lilja :c)

p.s. vertu duglegur að taka umferðarmyndir, bæði góða og slæma hluti ;)

Anonymous said...

Góða ferð Smúlus maximus

Svenster said...

The joint looks shagadelic... literally ;)

Guggan said...

Góða ferð!!! Og mundu...karamba!!

Samuel said...

Takk fyrir kommentin! Ég lofa að leggjast í miklar rannsóknir, bæði mannlífs- og umferðarrannsóknum. Get með sanni sagt að hér er nóg af verkefnum í þeim bransa...