Wednesday, June 13, 2007

Sólstrandagæji

Eftir góðan sólbaðsdag þá er setning dagsins sennilega "adna biva basjalsta", eða einn bjór takk. Adna er kvenkyns "einn", og fær -a aftan við sig. Biva er bjór og þar sem það endar á -a er það kvenkynsorð. Væri bjór karlkyns segði maður adnoi biva. That concludes our lesson for today...

Eins og fyrr sagði þá er íbúðin mín ekki langt frá helstu baðströndinni við Dnípur. Annars stærsti plúsinn við hana, á eftir rósóttu setunni. Eyddi semsagt eftirmiðdeginum á ströndinni í Obolon og renndi yfir lærdóm morgunsins á milli þess sem ég lagðist út af og naut sólarinnar...

Þetta er ansi hugguleg strönd. Með breiðri og fallegri gangstétt meðfram henni endilangri og kaffihúsum og veitingastöðum. Það dregur kannski eilítið úr fegurðinni af hafa sovétblokkirnar í bakgrunni, en það vill þó til að næst ströndinni eru nýrri blokkir - í undarlegum nýklassískum stíl - sem eru aðeins áferðarfallegri. Set hérna stuttan hlekk þar sem þið kæru lesendur getið séð staðinn þar sem ég flatmagaði. Bölvað tréð sem var alltaf að skyggja á mig sést meira að segja líka...

Svolítið fyndið hvernig bíómyndir eru "döbbaðar" hérna í sjónvarpinu. Ekki reynt að tala fyrir söguhetjurnar og reynt að herma eins vel eftir þeim og mögulegt er, heldur einfaldlega svona hálfgerður sögumaður sem talar ofan í myndina, og talið. Maður nær því kannski fyrstu tveimur orðunum sem Nicholas Cage segir, en síðan kemur ríkis-sögumaðurinn og útskýrir skilmerkilega hvað verið er að segja. Að vísu skiptast kona og karl á að lesa fyrir sitt hvort kynið. Ætli maður fari nokkuð í bíó hérna? ...

Meira síðar!

PS. Komst að því að usb-tengið mitt fyrir myndavélina rataði ekki með út, þannig að þið verðið að bíða þolinmóð eftir myndaskammtinum.

1 comment:

Anonymous said...

Jaja, vinur. Odno pivo pozhaluysta. Thad er rett held eg :)
Konni