Er vel flamberaður eftir náðugan dag á ströndinni í dag. Vaknaði seint, enda heldur illa sofinn eftir vikuna. Maður var ekkert að reyna að fara mjög mikið fyrr að sofa þótt Kiev sé þremur tímum á undan Íslandi og mæting kl. hálftíu í rússneskutímana alla morgna. Fór því ekki niður á strönd fyrr en um hádegisbilið í dag (kl. 9 að ísl. tíma) og lá þar í mestu makindum innan um fullt af fólki, og velti fyrir mér hversu vel íslenska þjóðin liti út ef hún borðaði jafn lítið og hreyfði sig jafn mikið og úkraínumenn...
Stefni á að kíkja aðeins á lífið í kvöld. Hugsa jafnvel að ég bjóði Konna og kærustunni hans út að borða í kvöld. Spurning um að kíkja síðan á Club Avalon, sem meistari Svenni getur ekki hætt að tjá sig um sökum mikillar hrifningar. Þar eiga víst að vera hálfnaktar dömur syndandi um í risastórum fiskabúrum. Eitthvað fyrir femínstana á Íslandi að tapa sér yfir væntanlega. En sem betur fer eru þeir þar, en ekki hér...
Da svidanja!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Gleðilegan 17. júní. Veit ekki hvort mér gengur að koma þessum pósti áfram. Vorum hjá Unni Bryndísi í gær og einnig hjá Árna Pétri og Gunnsteini. Mikið partý. Kv. Mútta.
Nice Sammi...very nice...eins gott að femínistarnir á Íslandi sjái ekki þetta blogg þitt...myndu tapa sér!
Allt gott hér heima, 17. júní í gangi og alles.
Á stór Seltjarnarnesi eru 16 gráður og léttur andvari (þakka þér fyrir) og erum við þakklát að hafa skýjahulu yfir okkur til að vernda okkur fyrir sólargeislunum (mömmu orð).
Annars er allt í besta standi, skemmtu þér vel og passaðu þig á bílunum!!!
var að skoða Kiev á google-maps, nokkuð fínar gervihnattamyndir þar af borginni. Fann samt ekki húsið þitt.
hilsen,
Sævar
úbbs einn femínisti búinn að sjá færsluna ;) en ég tek þetta þó ekki mikið nærri mér...öfunda þig mikið af strandlífinu!
Hæ, Mikið er ég fegin að þú ert kominn aftur frá Tsjernobyl. Skemmtilegt að lesa frásögnina. Hér heima er Stjáni að gera við bílskúrshurðirnar og mála. Allt of seint vegna gestakomunnar um helgina. Heyrumst. Mútta.
Post a Comment