Þá er rússneskukennslunni lokið. Fór í síðasta tímann í dag. Kennarinn minn er loks sannfærður um að ég sé ekki (bara) einhver útlensk peningasuga sem vilji arðræna fátæka úkraínumenn og segir mig vera einn besta nemandann sem hún hafi fengið! Jei ... Á leiðinni í skólann í morgun keypti ég lítinn blómvönd handa henni sem skilnaðargjöf og hún varð svaka happí. Ég lofaði að skrifa henni póstkort eftir að ég væri kominn heim.
Ég get nú ekki sagt að ég tali rússnesku eftir þessar þrjár vikur. Kannski ef ég hefði legið í bókunum 24/7 hefði ég getað náð lengra, en get þó rabbað einföldustu samtöl. Ég gat meira að segja svarað því hvar brauðið væri í lókalbúðinni, þegar eldri kona spurði mig. Ég skildi reyndar ekki baun sem hún sagði, en fattaði seinasta orðið: Hjlébb ... sem þýðir brauð. Orð sem ég get alltaf munað því það er keimlíkt hinu rammíslenska orði hleifur. Ég sagði því "tam, sléva" ... sem útleggst "þarna til vinstri".
Skemmtilegt að segja frá því að rússneska orðið "sjitt" þýðir "að langa". Þannig stundum sjittar manni að sjitta, ef þið skiljið.
Ég gær keypti ég mér lestarmiða til Simferopol á sunnudaginn og til baka viku seinna. Beið í klukkutíma í röð á aðaljárnbrautastöðinni í Kiev - sem kallast Voxsal á rússnesku - innan um þúsundir annarra í sömu hugleiðingum, í sennilega hátt í hundrað röðum að hundrað afgreiðslubásum. Komst að því mér til hrellingar, að búðarlokurnar taka sér pásur af og til án þess að það komi nokkur í þeirra stað, þannig að maður verður að gera svo vel og bíða þægur. Þessar elskur með rauða hárið bara standa upp, loka sjoppunni, draga niður gardínuna og labba út. Pásurnar eru gefnar til kynna með stórum stöfum á rúðunni, en hvað á útlendingurinn ég að halda. Ég var semsagt loks kominn upp að glerinu þegar búðarlokan gerir þetta og ég og aðrir í röðinni þurftum að bíða aukalega í tuttugu mínútur. Gamla Sovét ennþá sprelllifandi í svona hlutum. Þó er þetta kannski ekki ósvipað Strætó bs.
Veðrið er ekki búið að vera eins gott þessa síðustu 10 daga eins og hinir fyrstu. Kaldara og yfirleitt ekki nema hálfskýjað. Kannski 20 - 25 gráður og einstaka skúrir inn á milli :-) Hef því lítið getað lagst í alvöru sólbað undanfarið, en vonandi lagast það þegar maður rúllar niður á Krímskagann.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Rúskí karamba!!!
Kærar kveðjur frá Köben.
Arney, Pétur og öll börnin...
Vorum einmitt i midahremmingum i dag. Tetta gekk eins og i sogu i Kyiv, midad (ha mida??????) vid hjer i moskvu.
Kv.
Andres, Gauti og oll bornin.
Fátt meira hressandi en að lenda í gamla Sovétmekkanismanum
Hva! ... eru strax búnar 3 vikur eða eitthvað? Góða ferð til Krimopoli ... það er nú ágætt að vita til þess að heimurinn breytist ekki allur á einni nóttu og enn lifa gömul gildi. Ætti eiginlega að senda alla óþolinmóða ísl. í austurveg til að læra að röð er röð.
Haha, já ég tek undir það
hæ Sammi góða ferð og til lukku með afmælið á morgun :-) Begga
Post a Comment